Leita í fréttum mbl.is

Takk fyrir komuna

Kaupþingsmótið árið 2008 heppnaðist gríðarlega vel. Veðrið lék við mótsgesti. Fátt fór úrskeiðis og brosið á andlitum leikmanna segir alla söguna.Kaup�ingsmot 2008 Akranes (12)

Stjórn UKÍA þakkar mótsgestum fyrir komuna og ánægjulega samveru undanfarna þrjá daga.

Að sjálfsögðu fá þeir aðilar sem komu að framkvæmd mótsins mestu þakkirnar. Foreldrar barna í UKÍA stóðu vaktina samfellt í þrjá daga og að sjálfsögðu voru fjölmargir aðilar sem lögðu hönd á plóginn.

Takk fyrir komuna og takk fyrir aðstoðina.

Sjáumst í júní 2009....... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Ég vil þakka öllum aðstandendum fyrir frábært mót, þessi viðburður er skagamönnum öllum til mikills sóma. Þetta var stórkostleg helgi.

Eggert Hjelm Herbertsson, 23.6.2008 kl. 08:00

2 identicon

Núna þegar heim er komið kemur í ljós að það er því miður eitthvað sem vantar í töskuna hjá drengnum...

Hvert er hægt að hafa samband til að leita eftir óskilamunum núna eftir mótslok?

Gréta Rún Árnadóttir 23.6.2008 kl. 09:08

3 identicon

Takk kærlega fyrir gott mót :-) Þið voruð sérlega sniðug að fá veðurguðina svona í lið með ykkur ;-)

Alsæll drengur á þessu heimili, sem getur ekki beðið eftir næsta móti að ári.

HK kveðja úr Kópavoginum.

Hólmfríður Kristjánsdóttir 23.6.2008 kl. 11:23

4 identicon

Þökkum kærlega fyrir gott mót. og ekki síst fyrir góða veðrið.

Valgerður og Hafþór Bjarki KR-ingar

Valgerður Erlingsdóttir 23.6.2008 kl. 23:01

5 identicon

Hvar eru myndirnar af mótinu????

Jón Örn 24.6.2008 kl. 22:22

6 identicon

Þökkum kærlega fyrir frábæra helgi og höfðingjalegar móttökur á Skaganum! Sjáumst hress á næsta ári.

Kv. Emil, María, Alma og Valdimar Örn - Fylki

Emil Örn Víðisson 25.6.2008 kl. 11:38

7 identicon

Takk fyrir gott mót. Hvar getur maður nálgast óskilamuni?  Við töpuðum Aftureldingarregnstakki nr152 merktum Önnu Maríu. Kv. Vala

hólmfríður vala 25.6.2008 kl. 14:46

8 identicon

Takk kærlega fyrir gott mót, frábærlega skipulagt og vel staðið að öllu. Hlökkum til að koma á næsta ári   En það væri gaman að sjá myndirnar...

Eva 25.6.2008 kl. 19:50

9 identicon

Gaman að sjá þessi jákvæðu ummæli og tek sjálfur heilshugar undir þau. Óhætt er að fullyrða að mótið hafi tekist afar vel og við Skagamenn getum verið afar stoltir mótshaldarar.

Spurt er um myndir af mótinu á netið.  Mýmargar myndir voru teknar og mikil vinna að koma þessu öllu með sómasamlegum hætti á netið.  Myndirnar munu koma en við getum ekki lofa dagsetningu, höfum þetta þó fyrr en seinna.

kv. Þorkell

Þorkell ljósmyndari 2.7.2008 kl. 09:36

10 identicon

Hvað er að gerast með myndirnir, enn eru bara myndir inni frá því í fyrra?

Þóra Sigrún 2.7.2008 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband